Leturstærð
Get Adobe Flash player

Um Hjólafólk.is

Vefnum hjolafolk.is er ætlað að vera frétta og upplýsingamiðill hjólafólks á íslandi, ótengdur klúbbum, hjóla“gerðum“ og / eða annarri starfsemi í mótorhjólageiranum. Tilgangur vefsins er að stuðla að umfjöllun og umæðum um hjól, hjólamenninguna, forvarnir og hagsmunamál hjólafólks.
Skilgreining orðsins „hjólafólk“ á við um alla sem stunda mótorsport á einhverskonar hjólum, hvort heldur það eru 2, 3 eða 4 hjól sem snerta götuna, á eða utan vega.

Á vefnum verður meðal annars boðið uppá:

Fréttir og umfjöllun:
Ætlunin er að fjalla um og taka þátt í hagsmunabaráttu hjólafólks á Íslandi enda af nógu að taka í þeim efnum. Fjalla um og vera virkt afl í forvörnum og kynningum á forvarnar átökum sem stuðla að bættu öryggi hjólafólks, fjalla um hjólamenninguna og það líf sem kringum iðkendur hjólasportsins er.

Spjallborðið (Loftsían):
Loftsían er þinn vetvangur til að tjá þig um þínar skoðanir á hlutunum. Loftsían er öllum opin til aflestrar en skráðir notendur á vefnum geta stofnað til eða tekið þátt í umræðum.

Kannanir:
Á vefnum er öflugt kannanakerfi sem ætlunin er að nota til að afla upplýsinga og búa til tölfræði til notkunar í hagsmuna- og forvarnarbaráttunni niðurstöður allra þeirra kannana sem gerðar verða eru birtar á vefnum og eru öllum heimilar til notkunnar í forvarnar eða hagsmunar baráttunni.

Smáauglýsingar:
Á vefnum er boðið uppá smáauglýsingar sem ætlaðar eru fyrir hjól og hjólatengda hluti. Aðgangur að auglýsingunum er fyrir skráða notendur að vefnum og eru auglýsingarnar ókeypis, þú mátt setja inn eins margar auglýsingar og þú villt og þú getur sjálfur sjórnað birtingu og efni þeirra.

Dagskráin:
Skráðir notendur geta fengið aðgang til að setja inn dagskrárlið, þar má meðal annars nefna viðburði líkt og hópkeyrslur, samkomur, mótshald, ferðir  og / eða annað sem á erindi við okkur hin. Með sameiginlegu almanaki getum við fengið yfirsýn yfir þá fjölmörgu viðburði sem á dagskránni eru í þessu skemmtilega sporti.


Aðstandendur vefsins er fólk sem áhuga hefur á hagsmunum hjólafólks almennt, bættri umferðarmenningu og fækkun slysa.  Ef þú hefur áhuga á að slást í hópinn, skrifa greinar, umfjöllun eða bara blogga um hjólamenninguna hafðu þá samband við okkur og við setjum upp viðeigandi aðgengi fyrir þig.

Vefurinn hjólafólk.is er framlag okkar í litríka flóru hjólafólks á Íslandi og tilraun til að skapa öflugt  samfélag okkar á netinu.

Skilmálar fyrir skráningu notenda á hjólfolk.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.