Leturstærð
Get Adobe Flash player
Þriðjudagur, 08. september 2009 23:57

Lítið um CE merkingar Áhugavert

Gefa einkunn
(1 Atkvæði)
CE merking CE merking Beggi
Dagana 31.08.09 til 06.09.09 var gerð könnun meðal hjólafólks á því hvort sá hlífðarfatnaður sem er í notkun á Íslandi sé CE merktur, á sama tíma fórum við í heimsókn i nokkrar verslanir sem eru að selja mótorhjólavörur, til að kanna hvort þær vörur sem seldar eru í dag séu CE merktar.
Löng hefð er fyrir notkun hlífðarfatnaðar mótorhjólafólks á Íslandi og er mál þeirra sem td. Koma að úrvinnslu slysa að mótorhjólafólk á Íslandi sé almennt vel búið. Hluta af þessu má hugsanlega rekja til þess loftlags sem við búum við, en góður hlífðarfatnaður á það oft sammerkt að vera hlýr á sama tíma.  Þrátt fyrir þetta virðist sem CE merkingar séu ekki ofarlega í huga þegar valinn er fatnaður, enda bera mörg þeirra merkja sem almennt eru taldar til vandaðrar vöru, jafnvel frá framleiðendum sem þekktir eru í mótorsportinu sjaldnast CE merkingar.
Kannanir okkar sína að 70% þess hlífðarfatnaðar sem í notkun er ber ekki CE merkingar og að 77% þess hlífðarfatnaðar sem seldur er í mótorhjólaverslunum ber ekki CE merkingar, hins vegar er nánast allur sá búnaður sem boðinn er merktur einhverjum öryggisstöðlum svo sem DOT eða öðrum.
Niðurstöður könnunnar okkar á  CE merkingum er hægt að sækja á PDF formi hér að neðan.
Síðast breitt: Miðvikudagur, 09. september 2009 14:46
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Vefsíða: www.hjolafolk.is Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Login to post comments