FEMA viðurkennir og skilur sérstöðu mótorhjóla miðað við önnur ökutæki og leggur áherslu á að sérstakar þarfir þeirra séu skoðaðar.
Fullyrðingar er fram koma í þessu skjali eru samantektir niðurstaðna miðað við þekkingu og vitneskju á þessari stundu.
Aðgangur að vegum/vegakerfi
• FEMA stuðlar að og ver tilltsama notkun allra mótorhjóla á öllum almennum vegum.
• Við erum ávallt á móti því að gengið sé á rétt mótorhjóla til þess að vera í umferðinni og öllum reglum/lögum sem banna umferð þeirra á almennum vegum.
Aðgerðir gegn “fikti”
• FEMA styður rétt notenda til þess að breyta mótorhjólum sínum stefni þær breytingar á engan hátt öryggi í hættu né heldur áhrif á umhverfið.
• Við styðjum rétt notenda til þess að aðlaga mótorhjólin sín að eigin smekk og til þess að sinna reglulegu viðhaldi sem aðgerðir gegn “fikti” reyna að koma í veg fyrir.
Vitund og veiting ökuréttinda
• FEMA leggur til að vitund um mótorhjól og vespur verði innbyggt í þjálfun og leyfisveitingu í flokkum allra ökutækja.
• Við erum á móti aldurstakmörkum í útgáfu leyfa eftir stærð mótorhjóla sem ekki eru við lýði í flokkum annarra ökutækja.
Veggjöld
• FEMA stuðlar að notkun mótorhjóla með afnámi veggjalda sem eru viðbót við almenn bifreiðagjöld/skatta, sérstaklega séu þær vegna mettunnar vega af völdum ökutækja.
• Við leitumst eftir sanngirni í setningu lands- og Evrópulaga þegar veggjöld eru reiknuð og þá sér í lagi þegar þau koma í staðinn fyrir gildandi lög (eldsneytisskatta og föst veggjöld).
Mismunun
• FEMA er alfarið á móti allri mismunun gagnvart mótorhjólafólki.
Framfylgni
• FEMA kallar eftir jöfnum rétti mótorhjólafólks við aðra ökumenn í framfylgni laga.
• Við styðjum ekki rafræna löggæslu í stað mannlegrar.
• Okkur þykir eftirfylgni við núverandi hávaða og loftmengunnar takmarkanir betri kostur en frekari herðing þeirra.
Umhverfi
• FEMA hvetur til notkunnar bifhjóla á ferð milli staða og til afþreyingar þar sem áhrif þeirra á umhverfið er mun minni en annarra vélknúinna ökutækja. Bifhjól ganga á færri náttúruauðlindir og skapa minni umferðarteppur en önnur vélknúin ökutæki.
• Við styðjum viðleitni framleiðenda í að þróa bifhjól og minnka þannig umhverfisáhrif þeirra án þess að breytingarnar hafi áhrif á aksturseiginleika hjólanna.
• Við styðjum skilvirka endurvinnslu mótorhjóla/mótorhjóla varahluta, eins og er nú þegar stunduð innan Evrópusambandsins, án ónauðsynlegra hafta.
Utanaðkomandi stofnanir/Samstarf
• FEMA mun starfa með samtökum/stofnunum í þeim tilgangi að auka veg bifhjóla, að því gefnu að slíkt samstarf skapi ekki hagsmunaárekstra um rétt bifhjólamanna.
• Við munum vera í reglulegu sambandi og samstarfi við viðeigandi stofnanir í Evrópu og heiminum; Sameinuðu Þjóðirnar, stofnanir Evrópusambandsins, stjórnvöld einstakra ríkja, alþjóðleg bifhjólasamtök og öll önnur samtök/félög tengd málefnum bifhjóla.
• Við munum ekki ganga að samningum sem að á nokkurn hátt hefta eða minnka getu FEMA til að framfylgja tilgangi sínum.
Skatta ívilnanir
• FEMA styður skattaívilnanir sem stuðla að aukinni notkun bifhjóla.
Mannvirki
• FEMA heimtar að þeir aðilar sem sjá um umsýslu og stjórnun vegakerfis, umferðarmannvirkja og annast viðhald þeirra séu sér meðvituð um bifhjól við framkvæmdir.
• Við hvetjum bifhjólafólk til þess að upplýsa Vegagerð og verktaka á þeirra vegum um lagalegar skyldur þeirra gagnvart öryggi bifhjóla.
• Við styðjum þróun og notkun Evrópskra staðla byggða á bestu vitund hverju sinni sem stuðla að bættu umhverfi mótorhjólafólks, og leggjum jafnframt til að þeir séu endurskoðaðir reglulega.
Grunn þjálfun
• FEMA trúir að skipulögð kennsla sem á við hverju sinni eigi að vera öllum aðgengileg og þá einnig fjárhagslega. Einnig styður FEMA að ökukennarar bifhjóla þurfi að sýna fram á hæfni sína.
• Við leitumst eftir stuðningi yfirvalda við það að koma upp ökugerði þar sem grunn þjálfun og viðbótar kennsla fyrir vana geta farið fram.
• Við styðjum breytingar á prófum bifhjóla réttinda eingöngu þar sem fullsannað er að breytingarnar feli í sér aukið öryggi á vegum.
• Við viðurkennum rétt aðildarlanda til þess að staðfæra próf eftir aðstæðum hvers lands fyrir sig gegn því að sú staðfæring mismuni á engan hátt bifhjólafólki og stuðli að auknu öryggi í umferðinni.
• Við styðjum það að boðið sé uppá framhaldskennslu eftir að prófi er lokið.
Tryggingar
• FEMA heimtar sanngjarnar, skilvirkar og aðgengilegar tryggingar fyrir öll bifhjól og alla bifhjólamenn.
Þróaðri samgöngumannvirki
• FEMA vill að við hönnun, þróun og notkun gervigreindar (GPS osfrv) í samgöngum sé tekið tillit til þarfa bifhjóla og tryggt að bifhjól séu ekki undanskilin.
• Við erum á móti allri gervigreind sem getur tekið völdin af bifhjólamanninum sjálfum.
• Við styðjum þróun gervigreindar sem henta þörfum bifhjóla.
• Við erum á móti notkun gervigreindar í þeim tilgangi að vakta að óþörfu.
Hávaði
• FEMA er á móti óréttmætum lækkunum á hávaða reglugerðum (type-approved)
• Við hvetjum bifhjólamenn til þess að nota pústkerfi sem eru samþykkt til notkunnar í almennri umferð.
Bifhjólastæði
• FEMA vill næganleg sérmerkt og örugg bifhjólastæði til þess að annast eftirspurn nú og í náinni framtíð og skulu þau vera ókeypis.
Öryggisbúnaður bifhjólamanna
• FEMA hvetur til sjálfviljugrar notkunnar á viðeigandi öryggisbúnaði og fatnaði eftir aðstæðum.
• Við erum andvígir öllum lagasetningum sem þvingja bifhjólafólk til þess að nota slíkan búnað.
Takmörkun afls
• FEMA er á móti takmörkun afls bifhjóla.
Sýnileiki ökumanna og tækja
• FEMA mælir með að skyldunotkun bifhjólamanna á áberandi fatnaði, dagljósabúnaði sé undir ákvörðunum stjórnvalda í hverju ríki komið.
• Við mælum með að það sama eigi við um önnur ökutæki.
Hraða takmarkannir
• FEMA vill að hámarkshraða sé stýrt í samræmi við aðstæður hverju sinni og að þær mismuni ekki ökutækjum.
Tölfræði og rannsóknir
• FEMA styður rannsóknir sem sýni í raun þær hættur sem tengjast akstri bifhjóla.
• Við erum á móti allri löggjöf sem er byggð á óvísindalegum og/eða gölluðum rannsóknum.
• Við hvetjum til og þar sem tækifæri gefst, tökum við þátt í málefnanlegum evrópskum rannsóknum á bifhjólaslysum, séu rannsóknirnar hvorki gallaðar né hlutlægar.
• Við viljum tryggja að öryggisáætlanir skilgreini bifhjól sem áhættuhóp í umferðinni og að bifreiðar séu stór þáttur í alvarlegum slysum á bifhjólum.
• Við viljum að tölfræði um alvarleg slys á mótorhjólum verði sýnd með hliðsjón af notkun þeirra (fjölda, vegalengd osfrv).
Samfélagsleg viðhorf
• FEMA styður notkun bifhjóla til öflunnar atvinnu og menntunar sérstakleg þar sem aðrir ferðamátar eru ekki aðgengilegir.
Skattlagning
• FEMA fer fram á afnemun mismununar í sköttun innan Evrópu sem skapa óréttlátann markað borgaranna.
• Við leitumst ennfremur eftir því að ríkisstjórnir geti lækkað virðisaukaskatt á öryggisbúnaði bifhjóla.
Þjófnaður á bifhjólum
• FEMA styður allt það sem ver bifhjól betur fyrir þjófnaði, svo lengi sem það þýðir ekki aukinn kostnað á bifhjólamenn.
• Við hvetjum stjórnendur keppnisíþrótta á bifhjólum og mótorsports að kanna reglulega hvort stolnir bifhjólavarahlutir séu í umferð og að gera viðeigandi ráðstafanir til þess að upplýsa þjófnaði sé það raunin.
• Við hvetjum til þess að í Evrópu verði framkvæmd ítarleg rannsókn á bifhjólastuld og niðurstöður hennar svo nýttar til þess að samtök bifhjólamanna, framleiðendur og yfirvöld geti starfað betur saman gegn vandamálinu.
Framleiðslu staðlar
• FEMA styður notkun staðla séu þeir til þess fallnir að minnka álögur (skattar, tollar osfrv) en ekki að þeir takmarki rétt bifhjólamanna til þess að aðlaga hjól sín að eigin smekk né heldur að sinna viðhaldi.
• Við styðjum skráningu einstakra ökutækja sem og ökutækja framleidd í takmörkuðu magni og einnig ökutækja sem ekki eru framleidd sérstaklega fyrir evrópska markaðssvæðið
Hönnun ökutækja
• FEMA hvetur til framfara og þróunar í hönnun ökutækja.
• Við munum leitast við að fylgjast með gæðum, verði, eiginleikum og hönnun bifhjóla, varahluta og aukahluta þar sem það kemur öryggismálum bifhjóla beint við.
Á heimasíðu FEMA er meðal annars að finna


