Leturstærð
Get Adobe Flash player
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 02:24

Eiga Sniglar að ganga í FEMA? Áhugavert

Gefa einkunn
(0 Atkvæði)
Það er nokkuð ljóst að allflestir innan raða Snigla og þeir sem að samtökunum hafa komið eru sammála um Sniglar eiga að vera hagsmunasatök enda hafa þau alla burði til þess og sýnt það í gegnum tíðina að þau hafa unnið sem slík. Það ættu þá að vera hæg heimatökin að ganga formlega frá þeirri skilgreiningu á næsta aðalfundi. Einhver ágreiningur er þó um hversu langt eigi að ganga og hvað þurfi til. Eitt að því sem ágreiningur er um er hvort Sniglar eigi að sækja aftur um aðild að FEMA sem eru hagsmunasamtök mótorhjólafólks á Evrópuvísu.
Öll þekkjum við að hjólin okkar þurfa að uppfylla ákveðnar lágmarkskröfur, við sem ökumenn þurfum að fara að áhveðnum reglum og það vegakerfi sem við búum við er hannað samkvæmt stöðlum. Það er nú einu sinni þannig að megnið af þessum reglugerðum á uppruna sinn í Evrópusambandinu hvort heldur það viðkemur mótorhjólum beint eða umhverfi þeirra. Eini aðilinn sem sinnir virkri hagsmunabaráttu fyrir mótorhjólafólk í Brussel er einmitt FEMA. Þeim sem eru á móti FEMA aðild er tíðrætt um mikinn kostnað af þátttöku sem engu muni skila samtökunum, þetta er ekki allskostar rétt. Fyrir samtök með færri en 1000 greidda félaga á ári er þátttökukostnaðurinn aðeins 1600 evrur á ári sem eru um það bil 288.000 íslenskar krónur. Þetta er ekki hátt gjald fyrir aðild að samtökum eins og FEMA, þeim upplýsingum og því tengslaneti sem aðildin hleypir Sniglum í. Það er í raun líka, þó ekki væri fyrir annað skylda okkar að tryggja þátttöku í alþjóðlegu samstarfi á sviði hagsmunabaráttu mótorhjólafólks og það eitt í sjálfum sér góð og gild ástæða fyrir þátttöku. Eins og allir vita er Ísland aðili að EES og miðað við þjóðfélagsumræðuna hugsanlega aðili að Evrópusambandinu á komandi árum. Samkvæmt EES samningum er íslenskum stjórnvöldum skylt að taka upp þau lög og reglur sem lúta að þáttum þess samnings, og þar á meðal eru allar reglugerðir um ökutæki og umferðarmannvirki. Það er því ljóst að þau lög og reglur sem samin eru í bakherbergjum í Brussel munu á einn eða annan hátt hafa áhrif á hagsmuni okkar mótorhjólafólks á Íslandi. Íslensk stjórnvöld hafa í gegnum árin ekki verið þau duglegustu við að kalla til hagsmunaaðila við undirbúning og aðlögun þeirra laga sem okkur ber að taka upp. Með aðild að FEMA gefst Sniglum tækifæri á að hafa beint aðgengi að því sem er að gerast í kringum okkur og það tryggir að hægt er að bregðast við í tíma. Hvað Sniglar fá út úr aðild að FEMA er algerlega undir okkur komið, og þannig var það líka á þeim tíma sem Sniglar voru aðilar og raddir þeirra sem á móti eru að vitna til. Þetta fer jú allt eftir því hvað við eru tilbúin til leggjum á okkur við að vera þáttakendur. Þó ber mönnum heldur ekki saman um hvað samtökin fengu út úr aðildinni sem var. Til dæmis má geta þess að Sniglar fengu á þessum tíma vitneskju um nýja löggjöf varðandi ökuréttindi og próf á mótorhjól sem við nýttum okkur og vorum tilbúin með okkar rök þegar á þurfti. Það má líka benda á að aðild Snigla að FEMA skilaði á sínum tíma tekjum til samtakanna þegar SMC í Svíþjóð keypti umferðarátak Snigla frá 1992 til að nota í kennslu þar í landi. Þessar tekjur stóðu straum af kostnað Snigla við tvo FEMA fundi þá. Ein af rökum þeirra sem á móti aðild eru er að á öld Internetsins sé hægt að nálgast allar nauðsynlegar upplýsingar á netinu. Á vef FEMA eru bara upplýsingar um það sem samtökin hafa áorkað en ekki það se verið er að vinna í, upplýsingar frá fyrstu hendi. FEMA rekur einnig innri vef fyrir aðildarfélög þar sem fram fer vinna og umfjöllun um þau málefni sem verið er að vinna í. Það er svo með öllu annað mál og ótrúlega skammsýn hugsun að það dugi hagsmunasamtökum að vera eingöngu þiggjendur en ekki þátttakendur í alþjóðlegu samstarfi á því sviði sem þau starfa. Við þetta má líka bæta að margir funda FEMA eru haldnir á Skype svo að ekki þarf að senda fulltrúa á fundi nema 1-2 á ári til að teljast virk innan FEMA. Allar upplýsingar um "mikinn" kostnað eru þess vegna úr lausu lofti gripnar. Nánast öll okkar innan raða Snigla eru sammála um að við eigum að hafa í forgrunni umræðuna um hvort skilgreina eigi samtökin endanlega og formlega sem hagsmunasamtök með stefnuyfirlýsingu, sú umræða er búin að vera það lengi á lofti að löngu er orðið tímabært að ljúka henni. Það segir sig sjálft að samtök með á bilinu 5-700 greidda meðlimi ár hvert og skilgreint hlutverk í hagsmunabaráttunni í lögum sínum, getur vart lengur talist klúbbur. Við skorum því á alla að kynna sér hvað FEMA stendur fyrir, skoða heimasíðu þeirra http://www.fema.ridersrights.org/ og taka afstöðu til þess hvort hluta félagsgjalda okkar sé vel varið í að standa jafnfætis þeim sem við beinum hagsmunabaráttu okkar að.
Síðast breitt: Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 00:46
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Vefsíða: www.hjolafolk.is Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Login to post comments