Leturstærð
Get Adobe Flash player
Þriðjudagur, 02. febrúar 2010 14:04

Eru Sniglar klúbbur eða hagsmunasamtök? Áhugavert

Gefa einkunn
(0 Atkvæði)

En þessari stóru spurningu verður væntanlega varpað fram á komandi aðalfundi Snigla. Innan raða Snigla hefur lengi verið ágreningur um þetta mál og merkilega hefur þessi ágreiningur náð langt út fyrir raðir Snigla. En hvað liggur að baki þessara skilgreininga?

Ef Sniglar eru klúbbur, þá eru þeir einn af rúmlega 40 mótorhjólaklúbbum á landinu, þeir beina kröftum sínum og tekjum í að eignast gott húnæði með borvél, skrúfstykki, bar og svefnaðstöðu fyrir landsbyggðar Snigla, gott félagsheimili þar sem hægt er að hafa góðar samkomur og gleðjast saman. Hagsmunamál og forvarnir verða jú og hafa lengstaf verið partur af Sniglum en sem klúbbur þá er það hliðarbúgrein sem víkur fyrir afborgunum af húsnæði og því sem til þarf í þann rekstur.

 

Ef Sniglar eru hagsmunasamtök, þá eru Sniglar einu skilgreindu hagsmunasamtök bifjólamanna, breiðfylking fólks sem er annt um hagsmuni okkar og tilveru rétt. Kraftar samtakanna og athygli færu óskiptir í að berjast fyrir okkar hag og öryggi. Hagsmuna samtök þurfa jú vissulega samastað en í formi hentugrar skrifstofu og fundaraðstöðu sem fá mætti án mikils tilkostnaðar til nokkurra ára. Og  í stað borvélar og skrúfstykkis þurfum við tengslanet, bakland og stuðning frá samskonar samtökum annastaðar í Evrópu og aðgengi að upplýsingum sem nýtast okkur. Hússjóð samtakana má á meðan halda áfram að efla svo samtökin geti í framtíðinni staðið í alvörunni undir hentugum húsnæðis kaupum.

Ég nefndi áðan að ágreningur þessi næði langt út fyrir raðir Snigla og þá á ég við þann hóp sem ekki eru Sniglar, en iðulega stendur upp  og segir að Sniglar geti ekki verið hagsmunasamtök bifhjólafólks og tali ekki fyrir þeirra hönd, en það er jú einusinni þannig að það er öllum frjálst að vera aðilar að samtökunum eða ekki og markmið Snigla sem hagsmunasamtök að vinna fyrir félagsmenn sína.

Ég er þeirrar skoðunar að Það sé löngu orðið tímabært að stíga skrefið alla leið, sætta sig við að samtök með um 600 greidda félaga geta vart talist klúbbur lengur, að þörfin fyrir borvél og skrúfstykki er ekki til staðar þar sem fjölbreytt og skemmtileg klúbbamenning í landinu er fyrir löngu búinn að taka við því hlutverki, að þörf okkar bifhjólamanna fyrir öflugt og faglegt hagsmunabatterí er mikil og listinn yfir baráttu málin mjög langur.

Ég skora á alla Snigla sem láta sér annt um hag okkar hjólamanna og vilja að Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar standi fyrir fagleg og árangursrík vinnubrögð á sviði hagsmunabaráttu og forvarna að mæta á aðalfund, tryggja að framtíð samtakanna snúist um að vinna saman að því sem skiptir okkur öll máli og skapa frið um það.

Bergur Kristinsson #1831

Síðast breitt: Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 00:46
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Vefsíða: www.hjolafolk.is Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Meira í þessum flokki: « Eiga Sniglar að ganga í FEMA?
Login to post comments