Leturstærð
Get Adobe Flash player
Fimmtudagur, 10. september 2009 12:59

Hlífðarfatnaður Bifhjólafólks

Vorið 2007 voru ný umferðarlög samþykkt sem skylduðu bifhjólafólk til að klæðast viðurkenndum lágmarks hlífðarfatnaði.   Hvað fólst í þeim orðum var ekki búið að skilgreina og hefur nú tveimur árum síðar enn ekki verið gert.   Skv lögunum er ráðherra veitt vald til að vinna nánari skilgreiningu á því hvað viðurkenndur lágmarksfatnaður við akstur bifhjóls felur í sér.

Birt í Hagsmunamálin
Þriðjudagur, 08. september 2009 23:57

Lítið um CE merkingar

Dagana 31.08.09 til 06.09.09 var gerð könnun meðal hjólafólks á því hvort sá hlífðarfatnaður sem er í notkun á Íslandi sé CE merktur, á sama tíma fórum við í heimsókn i nokkrar verslanir sem eru að selja mótorhjólavörur, til að kanna hvort þær vörur sem seldar eru í dag séu CE merktar.
Löng hefð er fyrir notkun hlífðarfatnaðar mótorhjólafólks á Íslandi og er mál þeirra sem td. Koma að úrvinnslu slysa að mótorhjólafólk á Íslandi sé almennt vel búið. Hluta af þessu má hugsanlega rekja til þess loftlags sem við búum við, en góður hlífðarfatnaður á það oft sammerkt að vera hlýr á sama tíma.  Þrátt fyrir þetta virðist sem CE merkingar séu ekki ofarlega í huga þegar valinn er fatnaður, enda bera mörg þeirra merkja sem almennt eru taldar til vandaðrar vöru, jafnvel frá framleiðendum sem þekktir eru í mótorsportinu sjaldnast CE merkingar.
Kannanir okkar sína að 70% þess hlífðarfatnaðar sem í notkun er ber ekki CE merkingar og að 77% þess hlífðarfatnaðar sem seldur er í mótorhjólaverslunum ber ekki CE merkingar, hins vegar er nánast allur sá búnaður sem boðinn er merktur einhverjum öryggisstöðlum svo sem DOT eða öðrum.
Birt í Hagsmunamálin
Mánudagur, 31. ágúst 2009 23:48

Er gallinn þinn CE merktur?

Samkvæmt drögum að nýjum umferðarlögum er verið að skylda mótorhjólfólk á Íslandi til að nota staðlaðann hlífðarfatnað. Þarf allur gallinn þá að vera með CE merkingum sem þýðir einfaldlega að hann standist ákveðnar gerðir prófana, ef framleiðandi vill merkja hann þannig. Þetta eru Evrópureglur þannig að gallar framleiddir fyrir önnur markaðssvæði eru oftar en ekki án CE merkinga. Á Íslandi er löng og góð hefð fyrir notkun hlífðarfatnaðar og er Ísland líklega síðasta landið sem að þarf á slíkum lögum að halda. Norðmenn settu á svona lög fyrir nokkrum árum en drógu svo þá lagasetningu til baka þar sem að hún var talin ganga of langt. Íslenskt hjólafólk er á sama máli, og hafa Sniglar með stuðningi LÍM mótmælt þessari lagasetningu og lagt til að hún verði einskorðuð við þá sem hafa mótorhjól að atvinnu.
Birt í Hagsmunamálin
Laugardagur, 18. júlí 2009 01:21

Passar Hjálmurinn þinn ?

Eina öryggis-reglugerðin sem til er í lögum fyrir þá sem keyra mótorhjól er að ökumaður og farþegia ber skylda til að vera með hjálm á höfðinu, en ekki er í þeim reglum aldur hjálms né að hjálmurinn verði að passa á höfuð notandans.  Ótrúlega margir mótorhjólamenn hafa ekki hugmynd um það að hjálmar eru eins og skór þeir eru seldir eftir númerum, en þessi númer eru sentimetramál höfuðs viðkomandi. Í 99% tilfella er þetta sentimetramál það eina sem notandi hjálmsins á að nota. Mæla skal fyrir ofan augabrúnir og eyru og aftur á hnakka og ef sentimetramálbandið segir að þessi tala sé 58 sentimetrar á viðkomandi að kaupa hjálm númer 58.

Birt í Forvarnir