Vorið 2007 voru ný umferðarlög samþykkt sem skylduðu bifhjólafólk til að klæðast viðurkenndum lágmarks hlífðarfatnaði. Hvað fólst í þeim orðum var ekki búið að skilgreina og hefur nú tveimur árum síðar enn ekki verið gert. Skv lögunum er ráðherra veitt vald til að vinna nánari skilgreiningu á því hvað viðurkenndur lágmarksfatnaður við akstur bifhjóls felur í sér.
Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Landsamband Íslenskra Mótorhjólaklúbba stofnað, skammstafað LÍM. Samband þetta er ætlað að vera vettvangur þar sem allir mótorhjólaklúbbar geta komið að með sínar skoðanir á þeim málum sem snúa að mótorhjólafólki almennt. Þetta er ekki á neinn hátt félag eða klúbbur heldur vettvangur þar sem hjólamenn, sem er ört vaxandi hópur, geta fengið stuðning við málefni sem þau berjast fyrir s.s. öryggi mótorhjólamanna. Má segja að um eins konar hringborð sé að ræða þar sem allir klúbbar landsins geta sent einn forsvarsmann með sitt atkvæði.
Föstudaginn 28 ágúst verður haldinn LÍM dagurinn á Ingólfstorgi, ætlunin er að stefna sem flestum mótorhjólamönnum niður í miðbæ Reykjavíkur, þar sem LÍM verður kynnt. Eftir það verða tónleikar þar sem nokkrar hljómsveitir sem tengjast mótorhjóla-menningunni stíga á stokk. Þar munu spila Stormur í aðsigi, Chernobil, Þrusk og Sniglabandið. Vinsamleg tilmæli til allra klúbba, samtaka og félaga að mæta og það tímalega svo að við getum loks sýnt Íslendingum að við hjólafólk getum staðið saman.
LÍM hefur opnað heimasíðu www.lim.is.
Það eru allir sammála um að ferðamannaiðnaðurinn er mjög mikilvægur og fer ört vaxandi sem tekjulind fyrir Íslenska ríkið. Mótorhjólaiðnaður er iðnaður sem greinilega hefur verið vanmetin sem tekjustofn fyrir ríkiskassann. Honum má skipta í sex flokka: Torfærumótorhjólaflokk, götuhjólaflokk, mótorhjólakeppnisflokk, mótorhjólaferðamannaflokk, ný hjól og fjórhjól. Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , eitt er það sem vantar inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn og er það sá liður í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem er bensín og einnig vantar þar mótorhjóladekk.
Á síðasta ári var gerð skýrsla um mótorhjólaiðnaðinn fyrir árið 2005. Í eftirfarandi skjali er reynt að fara svipaða yfirferð um iðnaðinn fyrir árið 2006. Eins og á síðasta ári er skjalinu skipt í sex flokka: Torfærumótorhjólaflokk, götuhjólaflokk, mótorhjólakeppnisflokk, mótorhjólaferðamannaflokk, nýinnflutt hjól 2006 og fjórhjól. Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , eitt er það sem vantar inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn og er það sá liður í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem er bensín og einnig vantar þar mótorhjóladekk sem er stór liður í rekstri mótorhjóla.
Árið 2005 og 2006 tók ég saman gróflega tölur um notkun og gjöld sem mótorhjólafólk greiðir í ríkissjóð. Sem fyrr er skjalinu skipt í sex flokka: 1: Torfærumótorhjólaflokk, 2: götuhjólaflokk, 3: mótorhjólakeppnisflokk, 4: mótorhjóla-ferðamannaflokk, 5: nýinnflutt hjól 2007, 6: fjórhjól. Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , það sem virðist vanta inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn eru þeir liðir í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem eru bensín, mótorhjóladekk sem er stór liður í rekstri mótorhjóla (að meðaltali endist afturdekk undir torfæruhjólum á bilinu 800-1400 km. og á götuhjólum 4000-6000km), hlífðarfatnaður er mjög hátt skattlagður og er nú bundið í lög að klæðast hlífðarfatnaði í almennri umferð.
Frá og með árinu 2005 hef ég tekið saman gróflega tölur um notkun og gjöld sem mótorhjólafólk greiðir í ríkissjóð. Eins og áður er skjalinu skipt í 5 mismunandi liði, en fjórhjól hafa verið færð með torfæruhjólum: 1: Torfærumótorhjólaflokk, 2: götuhjólaflokk, 3: mótorhjólakeppnisflokk, 4: mótorhjóla-ferðamannaflokk, 5: nýinnflutt hjól 2008.
Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , það sem virðist vanta inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn eru þeir liðir í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem eru bensín, mótorhjóladekk sem er stór liður í rekstri mótorhjóla (að meðaltali endist afturdekk undir torfæruhjólum á bilinu 800-1400 km. og á götuhjólum 4000-6000km), hlífðarfatnaður er mjög hátt skattlagður og er nú bundið í lög að klæðast hlífðarfatnaði í almennri umferð. Hagstofan tekur væntanlega þessa þrjá liði (bensín, dekk og hlífðarfatnað) með hagtölum í öðrum liðum hjá sér, en ég tek þessa liði með og reyni að fá sanngjarnt meðaltal út úr því þessir liðir eru hluti af mótorhjólarekstri .
Í tölum slysaskráningar Umferðarstofu má sjá að mikil aukning hefur orðið á fjölda slysa á ökumönnum bifhjóla. Er þá bæði tekið saman slys á léttum bifhjólum og þungum. Í fyrra lét einn maður lífið á bifhjóli en 35 slösuðust alvarlega. Meðaltal fimm ára á undan eru 15,8 einstaklingar sem slasast alvarlega eða láta lífið á bifhjóli. 28,6% aukning á sér stað á samanlögðum fjölda alvarlega slasaðra og látinna milli áranna 2007 og 2008.
No current events.