Leturstærð
Get Adobe Flash player
Mánudagur, 21. mars 2005 20:03

Mótorhjólaiðnaður 2005

Það eru allir sammála um að ferðamannaiðnaðurinn er mjög mikilvægur og fer ört vaxandi sem tekjulind fyrir Íslenska ríkið. Mótorhjólaiðnaður er  iðnaður sem greinilega hefur verið vanmetin sem tekjustofn fyrir ríkiskassann. Honum má skipta í sex flokka: Torfærumótorhjólaflokk,   götuhjólaflokk,    mótorhjólakeppnisflokk,  mótorhjólaferðamannaflokk, ný hjól og fjórhjól. Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , eitt er það sem vantar inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn og er það sá liður í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem er  bensín og einnig vantar þar mótorhjóladekk. 

Birt í Hagsmunamálin
Sunnudagur, 21. maí 2006 19:57

Mótorhjólaiðnaður 2006

Á síðasta ári var gerð skýrsla um mótorhjólaiðnaðinn fyrir árið 2005. Í eftirfarandi skjali er reynt að fara svipaða yfirferð um iðnaðinn fyrir árið 2006. Eins og á síðasta ári er skjalinu skipt í sex flokka: Torfærumótorhjólaflokk,   götuhjólaflokk,    mótorhjólakeppnisflokk,  mótorhjólaferðamannaflokk, nýinnflutt hjól 2006 og fjórhjól. Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , eitt er það sem vantar inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn og er það sá liður í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem er  bensín og einnig vantar þar mótorhjóladekk sem er stór liður í rekstri mótorhjóla.

Birt í Hagsmunamálin
Þriðjudagur, 13. maí 2008 19:51

Mótorhjólaiðnaður 2007

Árið 2005 og 2006 tók ég saman gróflega tölur um notkun og gjöld sem mótorhjólafólk greiðir í ríkissjóð. Sem fyrr er skjalinu skipt í sex flokka: 1: Torfærumótorhjólaflokk,  2: götuhjólaflokk,   3: mótorhjólakeppnisflokk,  4: mótorhjóla-ferðamannaflokk, 5: nýinnflutt hjól 2007, 6: fjórhjól.    Til er greiningarflokkur hjá Hagstofu Íslands sem heitir: Vélhjólasala-Viðgerðirvélhjóla og Varahlutasala , það sem virðist vanta inn í þessa útreikninga hjá Hagstofunni við fyrstu sýn eru þeir liðir í rekstri mótorhjóla sem mest er skattlagður sem eru  bensín,  mótorhjóladekk sem er stór liður í rekstri mótorhjóla (að meðaltali endist afturdekk undir torfæruhjólum á bilinu 800-1400 km. og á götuhjólum 4000-6000km), hlífðarfatnaður er mjög hátt skattlagður og er nú bundið í lög að klæðast hlífðarfatnaði í almennri umferð.

Birt í Hagsmunamálin