Eitt af lykilatriðum í forvörnum og hagsmunabaráttu er að hafa góða tölfræði til að byggja á. Hjólfólk.is hefur nú tekið í notkun öflugt kannana kerfi og er ætlunin að búa til tölfræði til notkunar í forvörnum og hagsmunabaráttu hjólfólks. Kannanirnar eru öllum opnar og verða niðrstöður þeirra birtar hér á heimasíðunni. þeir sem eru að vinna að einstaka málum í forvörnum og / eða hagsmunamálum geta fengið að setja inn kannanir á vefinn eða fengið aðgang að niðurstöðum annara kannana til frekari úrvinnslu í framtíðinni. það er markmið okkar að á vefnum verið til tölfræði sem hjálpar okkur öllum í bættri menningu, fækkun slysa og betri árangri í hagsmunabarátunni.
Fyrsta könnunin okker er þegar komin af stað og snýr hún að sýnileika forvarna. þessi könnun er prufa á virkni kerfisinns, en þó þannig að um góðar og gildar upplýsingar er að ræða. við hvetjum alla til að taka þátt í könnuninni með því að smella hér. Einnig hvetjum við hjólafólk til að skrá sig á vefinn og taka þátt í umræðum og umfjöllun um mál og málefni okkar hjólamanna.
Í tölum slysaskráningar Umferðarstofu má sjá að mikil aukning hefur orðið á fjölda slysa á ökumönnum bifhjóla. Er þá bæði tekið saman slys á léttum bifhjólum og þungum. Í fyrra lét einn maður lífið á bifhjóli en 35 slösuðust alvarlega. Meðaltal fimm ára á undan eru 15,8 einstaklingar sem slasast alvarlega eða láta lífið á bifhjóli. 28,6% aukning á sér stað á samanlögðum fjölda alvarlega slasaðra og látinna milli áranna 2007 og 2008.
No current events.