Leturstærð
Get Adobe Flash player
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009 00:43

Lím dagurinn

Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Landsamband Íslenskra Mótorhjólaklúbba stofnað, skammstafað LÍM. Samband þetta er ætlað að vera vettvangur þar sem allir mótorhjólaklúbbar geta komið að með sínar skoðanir á þeim málum sem snúa að mótorhjólafólki almennt. Þetta er ekki á neinn hátt félag eða klúbbur heldur vettvangur þar sem hjólamenn, sem er ört vaxandi hópur, geta fengið stuðning við málefni sem þau berjast fyrir s.s. öryggi mótorhjólamanna. Má segja að um eins konar hringborð sé að ræða þar sem allir klúbbar landsins geta sent einn forsvarsmann með sitt atkvæði. 

Föstudaginn 28 ágúst verður haldinn LÍM dagurinn á Ingólfstorgi, ætlunin er að  stefna sem flestum mótorhjólamönnum niður í miðbæ Reykjavíkur, þar sem LÍM verður kynnt. Eftir það verða tónleikar þar sem nokkrar hljómsveitir sem tengjast mótorhjóla-menningunni stíga á stokk. Þar munu spila Stormur í aðsigi, Chernobil, Þrusk og Sniglabandið. Vinsamleg tilmæli til allra klúbba, samtaka og félaga að mæta og það tímalega svo að við getum loks sýnt Íslendingum að  við hjólafólk getum staðið saman.
 
LÍM hefur opnað heimasíðu www.lim.is.

Birt í Hagsmunamálin
Miðvikudagur, 17. júní 2009 15:04

Bifhjól í miðborginni

Reykjarvíkurborg og lögregla óska eftir samstarfi við bifhjólafólk varðandi umferð og akstur bifhjóla um miðborgina. Aðallega snýst þetta um hraðakstur á Sóleyjagötu og Skothúsvegi, en einnig það að mörg hjólanna eru ansi hávær. Reykjarvíkurborg og lögreglu hefur borist talsvert af kvörtunum þess efnis. Vilja þessir aðilar beina þeirri áskorun til bifhjólafólks að virða reglur um hámarkshraða og taka sérstaklega tillit til þess að margar götur í miðborginni eru íbúðagötur. Það er ekki hagur bifhjólafólks að takmarkanir verði settar á akstur bifhjóla um miðborgina, né að gripið verði til aðgerða gegn hávaða. Gaflarar skora því á allt hjólafólk sem á leið um miðborgina á hjólum að virða þessa áskorun og taka tillit til þeirra sem búa í miðborginni.
Birt í Hagsmunamálin