Leturstærð
Get Adobe Flash player
Föstudagur, 28. ágúst 2009 17:09

Regnhlífarsamtök mótorhjólafólks

Gríðarleg fjölgun mótorhjóla á Íslandi hefur orðið til þess að mótorhjól, sem sport og tómstundargaman hefur aldrei notið eins mikilla vinsælda og nú.

Hingað til hafa verið starfræktir margir sjálfstæðir mótorhjólaklúbbar á landinu en nú hafa verið stofnuð sérstök regnhlífarsamtök fyrir mótorhjólaklúbbana sem fengið hafa hið viðeigandi heiti LÍM. Skammstöfunin stendur fyrir Landssamband íslenskra mótorhjólaklúbba og er samtökunum ætlað að vera samráðsvettvangur mótorhjólaklúbba á Íslandi og vinna að hagsmunamálum bifhjólamanna.

Birt í Hagsmunamálin
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009 00:43

Lím dagurinn

Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Landsamband Íslenskra Mótorhjólaklúbba stofnað, skammstafað LÍM. Samband þetta er ætlað að vera vettvangur þar sem allir mótorhjólaklúbbar geta komið að með sínar skoðanir á þeim málum sem snúa að mótorhjólafólki almennt. Þetta er ekki á neinn hátt félag eða klúbbur heldur vettvangur þar sem hjólamenn, sem er ört vaxandi hópur, geta fengið stuðning við málefni sem þau berjast fyrir s.s. öryggi mótorhjólamanna. Má segja að um eins konar hringborð sé að ræða þar sem allir klúbbar landsins geta sent einn forsvarsmann með sitt atkvæði. 

Föstudaginn 28 ágúst verður haldinn LÍM dagurinn á Ingólfstorgi, ætlunin er að  stefna sem flestum mótorhjólamönnum niður í miðbæ Reykjavíkur, þar sem LÍM verður kynnt. Eftir það verða tónleikar þar sem nokkrar hljómsveitir sem tengjast mótorhjóla-menningunni stíga á stokk. Þar munu spila Stormur í aðsigi, Chernobil, Þrusk og Sniglabandið. Vinsamleg tilmæli til allra klúbba, samtaka og félaga að mæta og það tímalega svo að við getum loks sýnt Íslendingum að  við hjólafólk getum staðið saman.
 
LÍM hefur opnað heimasíðu www.lim.is.

Birt í Hagsmunamálin