Leturstærð
Get Adobe Flash player
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 02:24

Eiga Sniglar að ganga í FEMA?

Það er nokkuð ljóst að allflestir innan raða Snigla og þeir sem að samtökunum hafa komið eru sammála um Sniglar eiga að vera hagsmunasatök enda hafa þau alla burði til þess og sýnt það í gegnum tíðina að þau hafa unnið sem slík. Það ættu þá að vera hæg heimatökin að ganga formlega frá þeirri skilgreiningu á næsta aðalfundi. Einhver ágreiningur er þó um hversu langt eigi að ganga og hvað þurfi til. Eitt að því sem ágreiningur er um er hvort Sniglar eigi að sækja aftur um aðild að FEMA sem eru hagsmunasamtök mótorhjólafólks á Evrópuvísu.
Birt í Hagsmunamálin
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 01:56

Stefnuyfirlýsing FEMA

Á heimasíðu FEMA er meðal annars að finna stefnuyfirlýsingu samtakanna. Þeir sem vilja kynna sér fyrir hvað FEMA stendur geta lesið stefnuyfirlýsinguna hér að neðan í íslenskri þýðingu.

Stefnuyfirlýsing FEMA (The Federation of European Motorcyclists’ Associations)

Bakgrunnur
FEMA eru regnhlífasamtök bifhjólasamtaka (allra tvíhjóla vélknúinna tækja) um alla Evrópu. FEMA er fulltrúi hagsmuna aðildarfélaga sinna (land og landshluta klúbbar víðsvegar úr Evrópu) hjá Evrópu Sambandinu og hjá stofnunum Sameinuðu Þjóðanna.

Aðalmarkmið FEMA er að leita uppi, stuðla að og vernda hagsmuni bifhjólamanna.

Birt í Hagsmunamálin