Vefslóð: http://www.hjolafolk.is Senda vini: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
En þessari stóru spurningu verður væntanlega varpað fram á komandi aðalfundi Snigla. Innan raða Snigla hefur lengi verið ágreningur um þetta mál og merkilega hefur þessi ágreiningur náð langt út fyrir raðir Snigla. En hvað liggur að baki þessara skilgreininga?
Ef Sniglar eru klúbbur, þá eru þeir einn af rúmlega 40 mótorhjólaklúbbum á landinu, þeir beina kröftum sínum og tekjum í að eignast gott húnæði með borvél, skrúfstykki, bar og svefnaðstöðu fyrir landsbyggðar Snigla, gott félagsheimili þar sem hægt er að hafa góðar samkomur og gleðjast saman. Hagsmunamál og forvarnir verða jú og hafa lengstaf verið partur af Sniglum en sem klúbbur þá er það hliðarbúgrein sem víkur fyrir afborgunum af húsnæði og því sem til þarf í þann rekstur.
Á heimasíðu FEMA er meðal annars að finna stefnuyfirlýsingu samtakanna. Þeir sem vilja kynna sér fyrir hvað FEMA stendur geta lesið stefnuyfirlýsinguna hér að neðan í íslenskri þýðingu.
Stefnuyfirlýsing FEMA (The Federation of European Motorcyclists’ Associations)
Bakgrunnur
FEMA eru regnhlífasamtök bifhjólasamtaka (allra tvíhjóla vélknúinna tækja) um alla Evrópu. FEMA er fulltrúi hagsmuna aðildarfélaga sinna (land og landshluta klúbbar víðsvegar úr Evrópu) hjá Evrópu Sambandinu og hjá stofnunum Sameinuðu Þjóðanna.
Aðalmarkmið FEMA er að leita uppi, stuðla að og vernda hagsmuni bifhjólamanna.
Gríðarleg fjölgun mótorhjóla á Íslandi hefur orðið til þess að mótorhjól, sem sport og tómstundargaman hefur aldrei notið eins mikilla vinsælda og nú.
Hingað til hafa verið starfræktir margir sjálfstæðir mótorhjólaklúbbar á landinu en nú hafa verið stofnuð sérstök regnhlífarsamtök fyrir mótorhjólaklúbbana sem fengið hafa hið viðeigandi heiti LÍM. Skammstöfunin stendur fyrir Landssamband íslenskra mótorhjólaklúbba og er samtökunum ætlað að vera samráðsvettvangur mótorhjólaklúbba á Íslandi og vinna að hagsmunamálum bifhjólamanna.
Eitt af lykilatriðum í forvörnum og hagsmunabaráttu er að hafa góða tölfræði til að byggja á. Hjólfólk.is hefur nú tekið í notkun öflugt kannana kerfi og er ætlunin að búa til tölfræði til notkunar í forvörnum og hagsmunabaráttu hjólfólks. Kannanirnar eru öllum opnar og verða niðrstöður þeirra birtar hér á heimasíðunni. þeir sem eru að vinna að einstaka málum í forvörnum og / eða hagsmunamálum geta fengið að setja inn kannanir á vefinn eða fengið aðgang að niðurstöðum annara kannana til frekari úrvinnslu í framtíðinni. það er markmið okkar að á vefnum verið til tölfræði sem hjálpar okkur öllum í bættri menningu, fækkun slysa og betri árangri í hagsmunabarátunni.
Fyrsta könnunin okker er þegar komin af stað og snýr hún að sýnileika forvarna. þessi könnun er prufa á virkni kerfisinns, en þó þannig að um góðar og gildar upplýsingar er að ræða. við hvetjum alla til að taka þátt í könnuninni með því að smella hér. Einnig hvetjum við hjólafólk til að skrá sig á vefinn og taka þátt í umræðum og umfjöllun um mál og málefni okkar hjólamanna.
Sumardaginn fyrsta síðastliðinn var Landsamband Íslenskra Mótorhjólaklúbba stofnað, skammstafað LÍM. Samband þetta er ætlað að vera vettvangur þar sem allir mótorhjólaklúbbar geta komið að með sínar skoðanir á þeim málum sem snúa að mótorhjólafólki almennt. Þetta er ekki á neinn hátt félag eða klúbbur heldur vettvangur þar sem hjólamenn, sem er ört vaxandi hópur, geta fengið stuðning við málefni sem þau berjast fyrir s.s. öryggi mótorhjólamanna. Má segja að um eins konar hringborð sé að ræða þar sem allir klúbbar landsins geta sent einn forsvarsmann með sitt atkvæði.
Föstudaginn 28 ágúst verður haldinn LÍM dagurinn á Ingólfstorgi, ætlunin er að stefna sem flestum mótorhjólamönnum niður í miðbæ Reykjavíkur, þar sem LÍM verður kynnt. Eftir það verða tónleikar þar sem nokkrar hljómsveitir sem tengjast mótorhjóla-menningunni stíga á stokk. Þar munu spila Stormur í aðsigi, Chernobil, Þrusk og Sniglabandið. Vinsamleg tilmæli til allra klúbba, samtaka og félaga að mæta og það tímalega svo að við getum loks sýnt Íslendingum að við hjólafólk getum staðið saman.
LÍM hefur opnað heimasíðu www.lim.is.
Í tölum slysaskráningar Umferðarstofu má sjá að mikil aukning hefur orðið á fjölda slysa á ökumönnum bifhjóla. Er þá bæði tekið saman slys á léttum bifhjólum og þungum. Í fyrra lét einn maður lífið á bifhjóli en 35 slösuðust alvarlega. Meðaltal fimm ára á undan eru 15,8 einstaklingar sem slasast alvarlega eða láta lífið á bifhjóli. 28,6% aukning á sér stað á samanlögðum fjölda alvarlega slasaðra og látinna milli áranna 2007 og 2008.
No current events.